Félagsmálaráð
Fundargerð Félagsmálaráðs
67. fundur
FUNDARGERÐ
Fundur haldinn í félagsmálaráði Hornafjarðar í ráðhúsi fimmtudaginn 10. jan. 2002, kl 17.10.
Mætt voru: Björg Svavarsdóttir, Guðrún Jónsdóttir, Þorbjörg Helgadóttir, Margret Jóhannesdóttir, Guðmundur Ingi Sigbjörnsson, Sigurbjörn Karlsson og Birgir Kjartansson, félagsmálastjóri.
1. Einstaklingsmál.
Sjá trúnaðarbók.
2. Önnur mál.
Félagsmálastjóri kynnti bréf frá Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra
dags. 6. nóvember 2001, með beiðni um styrk til þeirra vegna táknmálstúlkun í menningar og tómstundastarfi. Ákveðið að leggja kr. 50,000 til þessa málefnis.
Félagsmálastjóri kynnti bréf Barnaverndarstofu dags. 5. desember 2001. Þar sem tilmælum er komið til barnaverndarnefnda og lögreglu að gripið sé til ráðstafana sem eru til þess fallnar að auka eftirlit með útleigu myndabanda þannig að aldursmörk séu virt. Þá þykir Barnaverndarstofu við hæfi að beina þeim tilmælum til barnaverndarnefnda að þær skrifi myndbandaleigum í sínu umdæmi bréf þar sem sérstaklega er farið fram á aðgæslu við útleigu þeirra mynda sem áður er getið.
Félagsmálastjóra var falið að skrifa bréf .
Fundi slitið kl. 18:20
Sigurbjörn Karlsson
Björg Svavarsdóttir
Guðmundur Ingi Sigbjörnsson
Guðrún Jónsdóttir
Margret Jóhannesdóttir
Þorbjörg Helgadóttir
Birgir Kjartansson, félagsmálarstjóri


