Félagsmálaráð
Fundargerð Félagsmálaráðs
68. fundur
Fundur haldinn í félagsmálaráði Hornafjarðar í ráðhúsi þriðjudaginn 29. jan. 2002,
kl 17.10.
Mætt voru: Sævar Kristinn Jónsson, Björg Svavarsdóttir, Guðrún Jónsdóttir, Þorbjörg Helgadóttir, Margret Jóhannesdóttir, Guðmundur Ingi Sigbjörnsson, Sigurbjörn Karlsson og Birgir Kjartansson, félagsmálastjóri.
1. Einstaklingsmál.
Sjá trúnaðarbók.
2. Önnur mál.
Félagsmálastjóri kynnti bréf frá Ævintýraklúbbi fyrir fjölfatlaða, þroskahefta og einhverfa, dags. 21. janúar s.l., með beiðni um styrk til starfrækslu félagsstarfs þeirra.
Ævintýraklúbburinn er að mestu rekinn fyrir stuðningsfé frá fyrirtækjum, einstklingum og stofnunum. Hann sinni líka sérstaklega þeim sem þurfa mjög mikla aðstoð og hafa afskaplega litla möguleika á skemmtulegu félagsstarfi. Félagsmálaráð samþykkir að leggja kr. 5000, til þessa málefnis.
Félagsmálastjóri kynnti bréf dags. 26.11.2001, frá Stígamótum, ráðgjafar-og fræðslumiðstöð, þar sem farið er fram á styrk fyrir árið 2002.
Félagsmálastjóri kynnti bréf Samtaka um kvennaathvarf dags.28. nóvember 2001. Samtökin fara þess á leit, að Kvennaathvarfinu verði veittur rekstrarstyrkur að upphæð kr. 200.000,-
Félagsmálastjóri kynnti bréf dags. 13. nóvember 2001, frá FSS, Félag sam-og tvíkynhneigðra stúdenta með beiðni um styrk að upphæð kr. 25.000,-
Félagsmálastjóri kynnti bréf sent í september 2001, frá Vistheimilinu að Sólheimum í Grímsnesi.Í bréfi er farið fram á styrk vegna byggingar umhverfis-og vistmenningarmiðstöðvar að Sólheimum.
Félagsmálaráð frestar afgreiðslu til næsta fundar.
Björg Svavarsdóttir vék af fundi kl. 17:30
Fundi slitið kl. 18:30
Sævar Kristinn Jónsson
Björg Svavarsdóttir
Guðmundur Ingi Sigbjörnsson
Guðrún Jónsdóttir
Margret Jóhannesdóttir
Þorbjörg Helgadóttir
Sigurbjörn Karlsson
Birgir Kjartansson, félagsmálarstjóri


