Félagsmálaráð
Fundargerð Félagsmálaráðs
83. fundur
Fundur haldinn í félagsmálaráði Hornafjarðar í ráðhúsi þriðjudaginn 26. nóv. 2002,
kl 16.10.
Mætt voru: Sigurbjörg Karlsdóttir, Björg Svavarsdóttir, Þorbjörg Helgadóttir, Guðrún Jónsdóttir, Guðmundur Ingi Sigbjörnsson og Birgir Þ. Kjartansson
1. Einstaklingsmál
Sjá trúnaðarbók.
2. Önnur mál
a) Svæðisskrifstofa um málefna fatlaðra á Austurlandi
Soffía Lárusdóttir, framkv.stj. Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Austurlandi og Guðbjörg Gunnarsdóttir, forst. ráðgjafadeildar komu á fund félagsmálaráðs í þeim tilgangi að kynna málefni fatlaðra. Þær ræddu um samstarf Svæðisskrifstofu og félagsþjónustunnar en í lögum um félagsþjónustu og lögum um málefni fatlaðra er kveðið á um samstarf skuli vera á milli svæðisskrifstofu og einstakra sveitarfélaga um þjónustu við fatlaða. Einnig sátu þessa kynningu Maren Sveinbjörnsdóttir, iðjuþjálfi
Þórhildur G. Kristjánsdóttir, þroskaþjálfi
starfsmenn málefna fatlaðra.
b) Umsókn um styrk frá Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra fyrir túlkun á menningar-og tómstundastarfi fyrir heyrnarlausa, heyrnarskerta og daufblinda í Hornafirði vegna ársins 2003. Óskað er eftir styrk að upphæð kr. 100.000. Félagsmálaráð samþ. að styrkja þetta málefni með kr. 50.000.-
c) Kynnt bréf frá Stuðlum þar sem fram kemur að breytingar eru fyrirhugaðar
á starfsemi stofnunarinanr. Félagsmálastjóri fer í heimsókn og kynnir sér breytingarnar.
d) Kynnt bréf frá Flutningad. KASK þar sem fram kemur að unglingar undir 18 ára aldri fái ekki far með flutningab. nema með milligöngu forráðamanns.
Fundi slitið kl. 17:45
Sigurbjörg Karlsdóttir
Björg Svavarsdóttir
Guðrún Jónsdóttir
Þorbjörg Helgadóttir
Guðmundur Ingi Sigbjörnsson
Birgir Þ. Kjartansson


