Félagsmálaráð
Fundargerð félagsmálaráðs 122
122. fundur
Fundur haldinn í félagsmálaráði Hornafjarðar í ráðhúsi þriðjudaginn 15. feb. 2005, kl 16.10.
Mætt voru: Einar Karlsson, Þorbjörg Helgadóttir, Björg Svavarsdóttir, Guðrún Jónsdóttir, Guðmundur Ingi Sigbjörnsson og Birgir Þ. Kjartansson félagsmálastjóri.
1. Einstaklingsmál, fært í trúnaðarbók.
2. Önnur mál
a) Félagsmálastjóri kynnti tilboð frá Lýðheilsustöð og Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna samstarfsverkefnisins VERTU TIL, sem er forvarnarverkefni. Í því er tillaga að verkefni sem miðar að eflingu forvarnarmála hjá sveitarfélögum landsins.
b) Drög að endurskoðuðum reglum um framkvæmd fjárhagsaðstoðar í Sveitarfélaginu Hornafirði. Eldri reglur voru samþykktar af félagsmálaráði Hornafjarðar 27. apríl 1995 og þar áður af félagsmálanefnd Hafnar 2. júní 1993.
Í 21. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga er kveðið á um að sveitarstjórn setji sér reglur um fjárhagsaðstoð að fengnum tillögum félagsmálanefndar. Þessar reglur skulu sendar félagsmálaráðuneyti. Sveitarfélag ber ábyrgð á félagsþjónustu innan sinna marka, sbr. 4. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, og skal það með skipulagðri félagsþjónustu tryggja framgang markmiðanna sem sett eru fram í 1 gr. laganna. Félagsmálaráðuneytið hefur á hinn bóginn eftirlit með því að sveitarfélögin veiti lögboðna þjónustu. Rétt er að geta mikilvægs hlutverk úrskurðarnefndar félagsþjónustu, en til nefndarinnar geta einstaklingar skotið einstökum ákvörðunum félagsmálanefnda og felst í því ákveðið eftirlit með framkvæmd laga um félagsþjónustu sveitarfélaga.
Félagsmálaráð Hornafjarðar samþykkir reglur um fjárhagsaðstoð.
Félagsmálastjóri kynnti erindi frá Lýsheilsustöð um forvarnir. Félagsmálaráð synjaði erindinu.
Fundi slitið kl. 17:10
Einar Karlsson
Þorbjörg Helgadóttir
Björg Svavarsdóttir
Guðrún Jónsdóttir
Guðmundur Ingi Sigbjörnsson
Birgir Þ. Kjartansson


