Félagsmálaráð
Fundargerð Félagsmálaráðs
87. fundur
Fundur haldinn í félagsmálaráði Hornafjarðar í ráðhúsi þriðjudaginn 11. feb. 2003, kl 16.10.
Mætt voru: Björg Svavarsdóttir, Þorbjörg Helgadóttir, Guðrún Jónsdóttir og Birgir Þ. Kjartansson
1. Einstaklingsmál
Sjá trúnaðarbók.
2. Önnur mál
a) Félagsmálastjóri kynnti bréf Barnaverndarstofu dags. 3. janúar 2003 þar sem greint er frá gildistöku ákvæða barnaverndarlaga nr. 80/2002 um styrkt fóstur, nánar tiltekið 4. mgr. 65. gr. og 2.mgr. 88. gr. laganna. Með bréfi eru einnig verklagsreglur sem Barnaverndartofa hefur mótað.
b)Bréf Barnaverndarstofu dags. 3. janúar 2003, þar sem vakin er athygli á því að óheimilt er að ráðstafa börnum í sumardvöl án þess að vistforeldrar hafi leyfi barnaverndarnefnda í heimilisumdæmi þeirra.
c) Bréf Barnaverndarstofu dags. 9. janúar 2003. Á árinu 2001 aflaði Barnaverndarstofa upplýsinga hjá barnaverndarnefndum landsins um símanúmer vegna barnaverndarmála sem kunna að koma upp um kvöld og helgar. Athugun Barnaverndarstofu leiddi í ljós að víða voru slík símanúmer ekki fyrir hendi sem augljóslega getur torveldað almenningi að tilkynna til barnaverndarnefndar grun um brot á barnaverndarlögum utan dagvinnutíma.
Í því skyni að auðvelda almenningi að koma á framfæri tilkynningum til barnaverndarnefnda hefur Barnaverndarstofa leitað til forsvarsmanna neyðarlínunnar, 112, um möguleika á samstarfi sem fælist í því að gefa samband við viðkomandi barnaverndarnefnd á dagvinnutíma en móttöku tilkynningar utan dagvinnutíma. Í slíkum tilvikum er hugmyndin að starfsmenn 112 meti alvarleika tilkynningar og ákveði á grundvelli þess hvort henni verði komið strax á framfæri til starfsmanns barnaverndarnefndar eða hvort beðið verði til næsta virka dags.
Barnaverndarstofa mun sjá um að semja gátlista fyrir starfsmenn 112, sem notaður verður við það mat.
Barnaverndarstofa vill hér með óska eftir að nefndin taki þátt í fyrirhuguðu verkefni. Þjónusta neyðarlínunnar mun ekki fela í sér kostnað fyrir hana né kalla á breytingar á starfsháttum. Eftir sem áður er gert ráð fyrir að unnt verði að tilkynna beint til viðkomandi barnaverndarnefndar. Þessari þjónustu er, eins og áður segir, fyrst og fremst ætlað að auðvelda almenningi að koma tilkynningu á framfæri utan dagvinnutíma.
Óskað er eftir svari um þátttöku nefndarinnar fyrir 3. febrúar næstkomandi.
d) Bréf Barnaverndarstofu dags. 29. janúar 2003. Á síðasta ári var skipuð nefnd til að vinna að verklagsreglum fyrir heilbrigðisstarfsfólk vegna tilkynningaskyldu til barnaverndarnefnda.
Verklagsreglunum er ætlað að minna á tilkynningaskylduna og um leið að auðvelda og skýra þær boðleiðir sem nota þarf. Það er von nefndarinnar að þær geti þannig stuðlað að meiri og markvissari samvinnu heilbrigðis-og barnaverndarstarfsmanna í málefnum barna sem þurfa vernd, stuðning og umönnunar frá þessum starfshópum.
Verklagsreglurnar eru nú í kynningu á Landspítalanum. Þá mun landlæknir senda þær öllum heilsugæslustöðvum landsins og hafa þær á sinni heimasíðu þannig að heilbrgiðisstarfsfólk geti nýtt sér þær þegar þörf er á.
Fundi slitið kl. 18:10
Björg Svavarsdóttir
Guðrún Jónsdóttir
Þorbjörg Helgadóttir
Birgir Þ. Kjartansson


