Félagsmálaráð
Fundargerð Félagsmálaráðs 119
119. fundur
Félagsmálaráð Hornafjarðar 119. fundur
Fundur haldinn í félagsmálaráði Hornafjarðar í ráðhúsi þriðjudaginn 30. nóv. 2004,
kl 16.10.
Mætt voru: Sigurbjörg Karlsdóttir, Þorbjörg Helgadóttir, Björg Svavarsdóttir, Elísabet Einarsdóttir, Guðmundur Ingi Sigbjörnsson og Birgir Þ. Kjartansson félagsmálastjóri.
1. Einstaklingsmál, fært í trúnaðarbók.
2. Önnur mál
a) Stefán Ólafsson greindi frá breytingum á samningi við félagsmálaráðuneytið vegna málefna fatlaðra. Um er að ræða auknar greiðslur vegna aukinnar þjónustuþyngdar. Einnig greindi hann frá hugmyndum um sérbýli fyrir fatlaða.
b) Maren Sveinbjörnsdóttir ræddi um búsetukosti fyrir fatlaða á Höfn og aukna þjónustuþörf og stiklaði á stóru um helstu mál sem tengjast málaflokknum.
c) Lögð fram drög að endurskoðun á reglum um framkvæmd fjárhagsaðstoðar í Hornafirði.
Fundi slitið kl. 18:00


