Félagsmálaráð
Fundargerð Félagsmálaráðs 105
105. fundur
Fundur haldinn í félagsmálaráði Hornafjarðar í ráðhúsi þriðjudaginn 10. feb. 2004,
kl 16.10.
Mætt voru: Þorbjörg Helgadóttir, Guðrún Jónsdóttir, Margret Jóhannesdóttir, Guðmundur Ingi Sigbjörnsson, Egill Jón Krisjánsson og Birgir Þ. Kjartansson
1. Einstaklingsmál
Sjá trúnaðarbók.
2. Önnur mál
a) Félagsmálastjóri kynnti nýja reglugerð frá félagsmálaráðuneytinu við nýju barnaverndarlögin nr. 80/2002, að fengnum tillögum Barnaverndarstofu.
Nú hefur fyrsta reglugerðin litið dagsins ljós, nr. 56/2004 um málsmeðferð fyrir barnaverndarnefnd. ?I reglugerðinni er fjallað um fjölmörg atriði sem tengjast málsmeðferð, svo sem skráningu tilkynninga til barnaverndarnefndar, könnun barnaverndarmáls, gerð áætlana, hlutverk talsmanns og skráningu og meðferð persónuupplýsinga hjá barnaverndarnefnd. Allar barnaverndarnefndir og starfsmenn þeirra eru hvattir til að kynna sér rækilega efni reglugerðarinnar sem felur í sér útfærslu á þeim reglum og kröfum sem lögin gera til vinnslu mála.
Reglugerðin er aðgengileg á heimasíðu Barnaverndarstofu, www.bvs.is.
Fundi slitið kl. 17:10
Guðrún Jónsdóttir
Þorbjörg Helgadóttir
Margret Jóhannesdóttir
Guðmundur Ingi Sigbjörnsson
Egill Jón Krisjánsson
Birgir Þ. Kjartansson


