Félagsmálaráð
Fundargerð Félagsmálaráðs 103
103. fundur
Fundur haldinn í félagsmálaráði Hornafjarðar í ráðhúsi þriðjudaginn 13. jan. 2004,
kl 16.10.
Mætt voru: Sigurbjörg Karlsdóttir, Þorbjörg Helgadóttir, Guðrún Jónsdóttir, Margret Jóhannesdóttir, Guðmundur Ingi Sigbjörnsson og Birgir Þ. Kjartansson
1. Einstaklingsmál
Sjá trúnaðarbók.
2. Önnur mál
a) Erindi frá Samskiptamiðstöð heyrnarlausra með beiðni um styrk vegna táknmálstúlkunar.
b)Félagsmálastjóri kynnti bréf Barnaverndarstofu frá 22. desember sl.
Þar er vísað í bréf Barnaverndastofu frá 9. janúar 2003 þar sem kannaður var vilji barnaverndarnefnda til þess að Neyðarlínan 1-1-2 veiti barnaverndartilkynningum móttöku.
Á fundi félagsmálaráðs þann 25. febrúar 2003 var eftirfarandi bókun:
Í bréfi Barnaverndarstofu dags. 8. október 2001 var óskað eftir að félagsmálastjórar, forstöðumenn fjölskyldudeilda og formenn barnaverndarnefnda veiti Barnaverndastofu upplýsingar um eitt neyðarnúmer vegna barnaverndarmála og annað til vara sem hægt væri að hringja í um kvöld og helgar. Upplýsingum um neyðarsíma (891-6393) var komið til Barnaverndarstofu og komið á framfæri á síðu nefndarinnar á heimasíðu Barnaverndarstofu, en þann síma hefur félagsmálastjóri Hornafjarðar.
Niðurstaða fundar var:
Félagsmálaráð Hornafjarðar telur ekki ástæðu til þess að breyta því fyrirkomulagi og verklagsreglum sem barnaverndarnefnd Hornafjarðar vinnur eftir í dag.
Félagsmálaráð hefur endurskoðað afstöðu sína í þessu máli , og nú er ákveðið að veita Neyðarlínunni umboð til móttöku barnaverndartilkynninga skv. 16.-18. gr. laganna.
Málþing um atvinnuþátttöku fatlaðra.
d) Páll Skúlason, rektor Háskóla Íslands segir í bréf sínu þann 11. desember sl.
þriðjudaginn 2. desember sl. var haldið í Háskóla Íslands málþing um atvinnuþátttöku fatlaðra. Undirbúníngshópur málþingsins lagði fram til skoðunar og umræðu meðfylgjandi vinnuplagg þar sem hvatt er til þess að samtök í atvinnulífi, fyrirtæki og stofnanir móti stefnu og grípi til aðgerða í því skyni að auka hlut fatlaðs fólks á vinnumarkaði. Ég leyfi mér að senda þér plaggið til kynningar með ósk um að það verði tekið til umræðu á þínum vettvangi.
Aukin hlutdeild fatlaðra á vinnumarkaði er ávinningur allra, fyrirtækja, fatlaðra og samfélagsins í heild.
Hér er um stórt verkefni að ræða sem margir þurfa að koma að. Við í Háskóla Íslands vildum leggja okkar af mörkum til umræðunnar með málþinginu og vonum að meðfylgjandi skjal hafi einnig tilætluð áhrif.
Páll Skúlason, háskólarektor
Í október 2002 ákvað félagsmálaráð Hornafjarðar að kanna stöðu atvinnulausra og fólks með skerta starfsorku í sveitarfélaginu. Send voru bréf til helstu fyrirtækja og stofnana í sveitarfélaginu um samvinnu í þeim tilgangi að auka atvinnumöguleika þeirra.
Félagsmálaráð tekur undir að þessi umræða er þörf, en reynsla okkar af áðurnefndum bréfum til stofnana og fyrirtækja skiluðu engum í því að fjölga störfum fyrir þá sem glíma við fötlun.
Fundi slitið kl. 17:45
Sigurbjörg Karlsdóttir
Guðrún Jónsdóttir
Þorbjörg Helgadóttir
Margret Jóhannesdóttir
Guðmundur Ingi Sigbjörnsson
Birgir Þ. Kjartansson


