Lög
Lög UMF Sindra
- Félagið heitir ungmennafélagið Sindri, skammstafað UMF. Sindri.
- Heimili og varnarþing félagsins er á Höfn í Hornafirði, Austur-Skaftafellssýslu.
- Félagar geta allir orðið sem óska aðildar með skriflegri umsókn, eða munnlegri umsókn á aðalfundum, eða öðrum opnum fundum félagsins, enda samþykki stjórnin umsókn á fundi sínum. Stjórn er heimilt að vísa inntökubeiðnum til ákvörðunar félagsfundar.
- Tilgangur félagsins er rekstur íþróttagreina og efling íþróttaiðkunar á Höfn og í Hornafirði.
- Málefnum félagsins stjórna:
a) Aðalfundur
b) Stjórn félagsins kosin, sem kosin er á aðalfundi til eins árs í senn. Kosnir skulu:
Formaður, ritari, gjaldkeri. Þá koma sjálfkrafa inní stjórn að auki formenn þeirra deilda, sem starfandi eru á vegum félagsins hverju sinni.Úr þeirra röðum skal skipa varaformann. Skoðunarmenn félagsins eru þeir sömu og kjörnir eru skoðunarmenn USÚ, nema aðalfundur ákveði að kjósa þá sér.
- Reikningsár félagsins og deilda þess er almanaksárið.
- Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum félagsins.
- Aðalfund mega sitja allir skráðir félagar, svo og þeir er óska inngöngu í
félagið á/fyrir fund.
- Aðalfund skal halda í síðasta lagi í maí ár hvert. Boða skal til hans með minnst 14 daga fyrirvara. Fundi skal boða með auglýsingum í staðarfjölmiðlum og á áberandi stöðum á félagssvæðinu. Í auglýsingu skal dagskrá aðalfundar koma fram.
Einstakar deildir félagsins skulu hafa haldið aðalfundi sína í síðasta lagi 2 vikum fyrir aðalfund félagsins. Heimilt er að sameina aðalfundi deilda ef þær þess óska.
- Málefni sem félagar óska að tekin verði fyrir á fundinum, skulu tilkynnt stjórn félagsins minnst 4 vikum fyrir fund.
- Fundurinn er löglegur, ef löglega hefur verið til hans boðað.
- Á aðalfundi hafa félagar 16 ára og eldri einir atkvæðisrétt.
- Aðeins fullgildir félagar eru kjörgengir.
- Hver félagi hefur aðeins 1 atkvæði.
- Aukafund má halda ef nauðsyn krefur skv. ákvörðun stjórnar félagsins eða 50 félagar óskar þess.
- Allur boðunar- og tilkynningarfrestir til aukafundar eru helmingi styttri en til reglulegs aðalfundar.
- Sömu aðilar hafa rétt til setu og á aðalfundi.
- Á aukafundi má ekki gera lagabreytingar og aðeins kjósa bráðabirgðastjórn. Sú stjórn skal sitja til næsta reglulegs aðalfundar.
- Að öðru leyti gilda sömu reglur og um aðalfund.
Dagskrá aðalfundar:
a) Setning.
b) Kosnir fastir starfsmenn fundarins þ.e. fundarstjóri,fundarritarar.
c) Fráfarandi stjórn flytur skýrslu sína fyrir síðasta reikningsár.
d) Lagðir fram endurskoðaðir reikningar félagsins og deilda þess.
e) Nefndir gefa skýrslu, þegar við á.
f) Umræða um skýrslur. Reikningar afgreiddir.
g) Kosnar fastar nefndir ef einhverjar.
h) Stjórn leggur fram fjárhagsáætlun næsta árs.
i) Lagabreytingar.
j) Aðrar tillögur sem eru til afgreiðslu á fundinum.
k) Kosning 3ja manna stjórnar. Aðrar kosningar eftir því sem við á. Kosning fulltrúa á sambandsþing USÚ (ársþing). Kosningar eru leynilegar ef einfaldur meirihluti fundarins óskar þess. Einfaldur meirihluti ræður úrslitum, nema ef um lagabreytingar sé að ræða, en þá þarf 2/3 hluta greiddra atkvæða. Fundur getur með 2/3 hluta atkvæða leyft að taka fyrir mál, sem fram er komið eftir að dagskrá fundar var auglýst. Kjósa má stjórn og nefndir í einu lagi þ.e. alla stjórnina saman, hugsanlegar nefndir í einu lagi. Þó skal kosið um einstök embætti æski einfaldur meirihluti fundar þess.
l) Önnur mál.
m) Fundargerð afgreidd.
n) Fundarslit. - Stjórn félagsins hefur yfirstjórn yfir félaginu og er fulltrúi þess útá við. Hún framkvæmir ályktanir aðalfundar. Hún fer með yfirstjórn allra peningamála félagsins og getur ef þörf virðist á, tekið fram fyrir hendurnar á einstaka starfandi deildum félagsins hvað öll mál varðar. Einstaka deildir skulu fara með fulltrúavald hver gagnvart sínu sérsambandi innan ÍSÍ og UMFÍ, og jafnframt vera tengiliðir við þau sérsambönd.
- Formaður félagsins boðar reglulega fundi og stjórnar þeim.
- Aukafundi skal kalla saman ef óskir um það koma frá einhverri deild félagsins.
- Aðalstjórn ber ábyrgð á fjármálum félagsins og deilda þess.
- Upplýsingar um allar starfsmannagreiðslur félagsins og deilda þess skulu veittar skattayfirvöldum skv. skattalögum hverju sinni.
- Ákvörðun um nefndir á vegum félagsins má stjórn taka á fundum sínum og jafnframt kjósa til þeirra. Þær skulu halda fundargerðir og lúta aðalstjórn. Aðalfundur getur tekið ákvarðanir um nefndarskipanir.
- Tillögur um að leggja félagið niður má aðeins taka fyrir á lögmætum aðalfundi.
- Til samþykktar þess að leggja félagið niður þarf minnst 4/5 hluta atkvæða.
- Sé félag lagt niður skulu hugsanlegar eignir þess renna til ungmennasambandsins Úlfljóts.
- Tillaga um að leggja félagið niður skal koma fram í fundarboði.
- Sé samþykkt að leggja félagið niður, skal boða til aukaaðalfundar til að staðfesta niðurstöðuna.
- Lögum verður ekki breytt nema á aðalfundi og þá með 2/3 hlutum atkvæða viðstaddra atkvæðisbærra félaga.
- Auglýsa skal lagabreytingar í fundarboði til aðalfundar.
- Um þau atriði, sem ekki eru tekin fram í lögum þessum, gilda ákvæði í lögum ÍSÍ ( eins og við á).



Skrifa athugasemd