Íþróttamót á Humarhátíð
Umf.Sindri heldur íþróttamót helgina 2-4 júlí 2010.
Keppt verður í knattspyrnu, 6. og 7. flokkar stúlkna og drengja, frjálsíþróttamót þar sem keppt verður í 60 m og 100 m spretthlaupi, 600 og 800 langhlaupi, lang og hástökki, boltakast, kúluvarp og spjótkasti, í aldursflokknum 10 ára og yngri, 11-12 ára og 13 ára og eldri. Þá verður einnig sundmót þar sem keppt verður í bringu, bak og skriðsundi í aldursflokkunum 7-8 ára, 9-10 ára, 11-12 ára, 13-14 ára og 15 - 16 ára.
Nánari dagskrá íþróttamótsins kemur á netið þegar nær dregur.
Hin margrómaða humarhátíð verður haldin þessa helgi, stórglæsileg fjölskylduhátíð sem er nú haldin í 18.skipti.
Kíkið líka á humar.is/
Dagskrá
Föstudagur 2.júlí
15:00-17:00 Móttaka keppnisliða í Hafnarskóla, leikir hefjast kl.17:30
19:30 Liðin gera sig klár í skrúðgöngu Humarhátíðar
20:00 Setning Humarhátíðar á hátíðarsvæðinu
Laugardagur 3.júlí
09:00 Leikir hefjast samkv.leikjatöflu
11:30-12:30 Matur
12:30 – 14:00 Kassabílarallí
14:00 – 16:00 Leikir samkv.leikjatöflu
16:30 Skemmtidagskrá Humarhátíðar samkvæmt dagskrá
Sunnudagur 4.júlí
09:00-13:00 Leikir samkv.leikjatöflu
14:00 Verðlauna afhending, allir keppendur fá gjöf og verðlaunapening.


