Sveinbjörg vann gull í Finnlandi.
Sveinbjörg Zophoníasdóttir frjálsíþróttakonan vann til gullverðlauna á sterku fjölþrautarmóti í Finnalandi nú um helgina.
Hún sigraði í sínum flokki U 22 með 3927 stig sem tryggði henni gullverðlaun en það er hennar næstbesti árangur í þraut frá upphafi en sá árangur skilaði henni bronsi í fullorðinsflokki, þær sem komu á eftir henni í sama flokki voru með 3896 og 3852 stig svo það má sjá að þetta hefur verið hörku keppni.
Sveinbjörg sem er aðeins 21. árs gömul og á því 1 ár eftir í þessum flokki. Með þessu líkur hún innanhústímabili sínu og fer að undirbúa sig fyrir sumarið sem verður viðburðaríkt hjá henni þar sem hún er búin að ná lágmarki á EM U 22 sem fer fram í Finnlandi í sumar.




Skrifa athugasemd