Sindra fréttir
Sindri karfa
Sindri karfa
Sindri mætti hér toppliði UMFH í 2. deildinni. (úr myndasafni)

05.02.2013 Sindra fréttir

Sindri stefnir á 1. deild í körfunni!!

Sindri hefur unnið 4 leiki en tapað 4. Tveir af þessum tapleikjum kom á móti Mostra sem er efsta liðið í riðlinum og tapað einungis einum leik.

Liðið hefur þó styrkt sig eftir áramót og framhaldið lofar góðu!

Til að styrkja stöðu sína hefur Sindri fengið til sín nokkra nýja leikmenn en þar má nefna þá Ármann Örn Vilbergsson sem kemur frá Grindavík og Alexander Dungal sem kemur frá Val.

Einnig voru gerðir tveir venslasamningar við þá Brynjólf Hauk Ingólfsson og Alexander Snæ Stefánsson sem æfa og spila báðir með 11. flokk KR. Síðan eru þeir Hallmar Hallsson og Kjalar Jóhannsson komir aftur heim.

Sindri þarf að lenda í einum af 4 efstu sætunum í sínum riðli til að komast í úrslitakeppnina en keppt er í tveimur riðlum í 2. deild og fara 4 lið úr hvorum riðli í úrslitakeppni. Þar er hefst útsláttarkeppni þar sem keppt er um tvö laus sæti í 1. deild. Sindri er sem stendur í 4. sæti síns riðils og á 8 leiki eftir í riðlinum og þar af 2 heimaleiki. Keppnin í riðlinum er mjög jöfn og geta öll liðin í riðlinum náð sæti í úrslitum. Næstu leikir Sindra eru á móti Ármanni og KV á útivelli.

Markmið Sindra að komast í 1. deild er hvetjandi fyrir körfuknattleiksdeildina í heild og samhliða góðum árangri kemur aukinn áhugi sem við vonum að skili sér í yngriflokkastarfið.

Við höfum góða aðstöðu til fyrir körfubolta bæði úti og inni.

Þó er ekki hægt að horfa framhjá því að mikið er kvartað undan gólfinu í íþróttahúsinu, það er of mjúkt, hreyfingar boltans eru öðruvísi og álag á fætur leikmanna er mikið. Efst á óskalista körfuboltaiðkenda er því að fá parketgólf í íþróttahúsið. Það er t.d. orðið skilyrði í efstu deild körfuboltans hér á landi að spilað sé á parketgólfi enda bein tengsl á milli álagsmeiðsla leikmanna og gólfefnis.

Við hvetjum Hornfirðinga til að mæta í íþróttahúsið og horfa á spennandi leiki í vetur, aðgangur er ókeypis.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica