Sveinbjörg RIG meistari
Um síðustu helgi var haldið alþjóðlegt frjálsíþróttamót og fór það fram í Reykjavík. Á mótið komu margir erlendir keppendur komu og öttu kappa við okkar fólk.
Sveinbjörg Zophoníasdóttir tók þátt í þessu móti og sigraði í kúluvarpi og þríþraut sem er 60m grind, kúluvarp og langstökk. 5 keppendur voru í þrautinni. Einn keppandinn kom frá Noregi en það breytti ekki neinu fyrir Sveinbjörgu hún tók þetta með glæsibrag og bætti sinn fyrri árangur í þrautinni um 300 stig.
Sveinbjörg er greinilega í góðu formi mun hún fljótlega halda til Svíþjóðar á sænska meistaramótið þar sem hún keppir í 5 þraut.




Skrifa athugasemd