26 verðlaunapeningar og 2 Íslandmeistaratitlar
Helgina 9-11. nóvember sl. fóru 27 keppendur frá Fimleikadeild Sindra til Akraness á Íslandsmeistaramótið í almennum fimleikum.
Mótið var mjög vel sótt, um 300 keppendur frá 9 félögum mættu til leiks. Keppendum var skipt upp eftir aldri og getu í A og B flokka, keppt var í gólfæfingum, dýnustökki, trampolínstökki og stökki yfir hest, auk þess sem keppt var í fjölþraut sem er samanlagður árangur fyrir öll áhöld.
Keppendur Sindra stóðu sig afar vel og margir þeirra að taka þátt í íslandsmóti í fyrsta skipti.
Á verðlaunapall komust:
Arney Bragadóttir sem fékk gull í dansi og trampólíni en silfur á dýnu og varð jafnframt Íslandsmeistari í sínum flokk samanlagt.
Hafsteinn Elvar Aðalsteinsson sem varð fyrstur á öllum áhöldum og jafnframt Íslandsmeistari í sínum flokk samanlagt.
Guðrún Ása Aðalsteinsdóttir sem varð Íslandsmeistari í stökki og fékk brons á trampólíni.
Tinna Marín Sigurðardóttir fékk silfur í stökki.
Auðunn Ingason fékk silfur á öllum áhöldum og samanlögðu en brons á dýnu.
Dagur Sævarsson fékk brons á trampólíni, stökki og samanlagt en silfur á dýnu.
Hildur Margrét Björnsdóttir fékk brons á trampólíni, stökki og dýnu.
Malín Ingadóttir fékk brons á stökki.
Eins og sést á þessum úrslitum þá er mikill uppgangur í fimleikum hér á Hornafirði.
Ásamt því að keppa á móti þá var farið með krakkana í fimleikahús Ármanns í Reykjavík. Höfðu krakkarnir verulega gaman af því að prófa vel útbúið fimleikahús með góðum áhöldum.
Þetta var skemmtileg ferð í alla staði , bæði iðkendur og þjálfarar skemmtu sér vel. Bestu þakkir til þeirra sem komu að ferðinni og tóku að sér fararstjórn. Þökkum einnig Nettó fyrir styrk í vallarnesti.
Þjálfarar og stjórn Fimleikadeildar Sindra
Áfram Sindri !




Skrifa athugasemd