Sindra fréttir
íformiæfing
íformiæfing
íformiæfing

29.06.2012 Sindra fréttir

Íformi 2012

Undirbúningshópur fyrir Íformi 2012 sem verður haldið 14.-15. september, mætti óvenju snemma til starfa þetta árið eða í fyrstu viku júní.

Mikill hugur er í mannskapnum að gera mótið jafngott og í fyrra og helst aðeins betra. Greinastjórar eru allir þeir sömu nema í golfinu þar kemur engin annar en Gestur Halldórsson til með að vera okkur innan handar og þar komum við ekki að tómum kofanum enda Gestur búinn að starfa lengi að félagsmálum.

Greinaranar verða trúlega þær sömu og í fyrra að við bættri einni styttri hlaupavegalengd þar sem hlaupa áhugi hefur verið að aukast í sveitafélaginu. Margir hafa stundað stífar æfingar frá í fyrra en aðrir eru að skríða úr fylgsnum sínum núna með vorinu og svo bætast vonandi fleiri við þegar líður á sumarið. Brenniboltinn er með æfingar á miðbæjarsvæðinu kl 18:00, oldboys sprikla kl 20:30 á mánudögum og miðvikudögum, Guðrún Ingólfs er boðin og búin að gefa góð ráð í frjálsum en fastir æfinga tímar verða ekki settir fyrr en nær dregur móti. Golf, blak, bridge, og hlauparar sjá enn um sig sjálfir.

Við erum búinn að lofa hvort öðru að vera duglegri að skrifa og leyfa fólki að fylgjast betur með hvernig undirbúningur gengur.  Einnig er það von okkar að aðrir komi  með „góðar hugmyndir“ sem gætu hjálpað okkur í að styrkja mótið og auðvita eru allar hugmyndir vel þegnar. Lokakvöldið, slúttið, uppskeruhátíðin eða hvað á að kalla geimið hefur verið verið að flækjast fyrir okkur og erum við að reyna að útbúa skoðanakönnun á Facebook til að fá vilja fólks upp á borðið. Hvernig kvöldið á að líta út, verðlaunaafhending eða ekki, matur eða ekki og hversu flottur þá?

Að lokum hvetur undirbúningshópur fyrir Íformi alla til að koma sér í eilítið betra form hvort sem fólk ætlar að keppa í haust eða ekki því þó svo að fólk finni ekki grein á þessu móti þá er fullt annað um að vera. T.d. er ferðafélagið með fullt að skemmtilegum göngum í sumar og prógramm sem gaman er að taka þátt í, sundlaugin er hér í miðjum bænum og alltaf jafn heilsusamlegt að synda og svo mætti lengi telja.

Ekkert dorm allir Íform       

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica