Sindraleikarnir
Sunnudaginn 24. júní ætlar frjálsíþróttadeild Sindra að vera með sína árlegu Sindraleika.
Þar verður keppt í aldursflokkunum 8ára og yngri, boltakast, langstökk og 60m hlaup, 9-10 ára, boltakast, langstökk, 60m og 600m hlaup, 11-12 ára, langstökk, spjótkast, kúluvarp, 60m og 800m hlaup, 13-14 ára og 15-16 ára, langstökk, spjótkast, kúluvarp, 100m og 800m hlaup.
Sindraleikarnir hefjast stundvíslega kl 13:00 og gott er að vera mættur hálftíma fyrr til þess að hita upp.
Þátttökugjald er kl 500.- og greiðist við skráningu.
Veittir eru verðlaunapeningar fyrir fyrstu 3 sætin í flokkum 11-16 ára en allir þátttakendur 10 ára og yngri fá viðurkenningarpening.
Ekki verður keppt í hástökki á Sindraleikunum en hástökksmót fyrir 11 ára og eldri verður svo þriðjudaginn 26.júní kl 17:30.
Vonumst til að sjá sem flesta á sunnudaginn kl 13:00.
Frjálsíþróttadeild Sindra.




Skrifa athugasemd