Sindra fréttir
Kvennahlaup
Kvennahlaup

14.06.2012 Sindra fréttir

Kvennahlaup ÍSÍ  3 og 5 km í boði

Eins og undafarin ár þá mun Sindri sjá um kvennahlaup ÍSÍ og verður það haldið 16. Júní og hefst kl. 11:00, en sala á bolum og skráning verður frá 10:00 sama dag og í Sindrahúsinu miðvikudag og fimmtudag milli 17:00 – 19:00

Sú nýung verður að tekið verður á móti brjósthöldurum og verður sjálboðalið frá Rauða kross deild Hornafjarðar á staðnum.  

 

 Að vanda verður Egils kristall og glaðningur frá Nivea og að sjálfsögðu frítt í sund fyrir þátttakendur.  Nú er um að gera að drífa sig af stað og taka þátt í hollri  og góðri hreyfingu.  Tvær leiðir eru í boði 3 km og 5 km.   Fyrir hlaupið mun Matthildur Ásmundsdóttir stjórna upphitunaræfingum. 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica