Knattspyrnan komin á fullt
Annar sigur í röð hjá meistarflokki kvenna!
Fjórir leikir fór fram um helgina 2. flokkur spilaði við BÍ tvo leiki sá fyrri á föstudaginn og fór 1-1 þar sem Sverrir Birkisson setti mark og seinni leikurinn fór 1-2 þar sem strákarnir voru 2-0 undir í hálfleik en voru mun betri í þeim seinni og Hallmar Hallsson minkaði muninn er strákarnir fengu fín færi til að jafn leikinn.
Meistaraflokkur Sindra fór til Þorlákshafnar og keppti við heimamenn í Ægi. Það er skemmst frá því að segja að okkar menn voru mun betri en náðu ekki að nýta færin og lentu marki undir í seinni hálfleik. Það var svo þjálfarinn sjálfur, Óli Stefán sem fór fyrir liði Sindra og jafnaði úr síðustu sókn leiksins niðurstaðan 1-1
Á annan í hvítasunnu tóku svo Sindra skvísurnar á móti Þrótti Rvk. í bíðskaparveðri á Sindravöllum. Stelpurnar stóðu sig frábærlega og eftir að markalaust hafði verið í hálfleik þá skoraði Valdís Ósk Sigurðardóttir 2 mörk og staðan orðin 2-0. Vel gert hjá Valdísi sem skoraði mörkin með mikilli yfirvegun. Eftir þetta sóttu gestirnir nokkuð grimmt og náðu að minka muninn í eitt mark. Anna Mekkín sá svo til þess að þær skorðuð ekki fleirri mörk en hún átti stórleik í marki Sindra og varði oft á tíðum meistarlega. Niðurstaðna 2-1 og Sindri í efsta sæti A riðils í 1. deild.
Þetta var fyrsti leikur sumarsins og lofar góð bæði hvað varða mætingu og árangur. Svo er bara að skrá sig í stuðningmannaklúbbin við fyrsta tækifæri!
Næstu leikir
1. deild kvenna Hertsvöllurinn ÍR - Sindri föstudaginn 1. júní kl. 20:00
4. flokkur kvenna Sindravellir Föstudaginn kl 18:00 Sindri - Grótta
3. deild karla Sindravellir Laugardagur kl 16:00 Sindri - Léttir
3 flokkur karla Sindravellir Laugardagur kl. 18:00 Sindri - Afturelding
Svo er það bara áfram Sindri og allir á völlinn



Skrifa athugasemd