Leikja- og knattspyrnunámskeið Sindra
Sindri starfrækir leikjanámskeið í sumar eins og undafarin ár fyrir 6-9 ára börn.
Fyrirhuguð er tvö námseið í júní og hefjast það fyrra 4. Júní og stendur til 15 júní og það seinna frá 18 júní til 29 júní. Námskeiðið stendur frá 9 -12 en boðið er upp á gæslu frá 8:00.
Dagsskráin er fjölbreytt t.d. sveitaferð, hestaferð, hjóladagur, golf, veiðiferð, fjöruferð og ratleikur svo eitthvað sé nefnt. Verð fyrir hvert námskeið er 8 þúsund á barn en 15 þúsund ef bókað er á bæði námskeiðin.
Eins er hægt að semja um einstakar vikur og að sjálfsögðu er systkina afsláttur. Umsjónamaður er Guðrún Ása Jóhannsdóttir og skráning hefst mánudaginn 4. júní í íþróttahúsi Heppuskóla.
Knattspyrnunámskeið - fyrir börn fædd 2006
Knattspyrnudeild Sindra ætlar að bjóða upp á knattspyrnunámskeið fyrir þau börn sem eru að byrja í skóla í haust (fædd 2006).
Námskeiðið hefst þriðjudaginn 12. júní, stendur yfir í 5 vikur og endar fimmtudaginn. 12. júlí.
Æft verður á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum kl. 13:00 – 14:00.
Verð á námskeiðið er 5000 kr. Greiðsla fer fram á fyrstu æfingu.
Skráning verður á netfangið saevar@hornafjordur.is
Þjálfari verður Sævar Þór Gylfason íþróttakennari.



Skrifa athugasemd