Sindra fréttir
Leikjanámskeið
Leikjanámskeið
Leikjanámskeið, Bergárdalur
Mynd 1 af 2
1 2

29.05.2012 Sindra fréttir

Leikja- og knattspyrnunámskeið Sindra

Sindri starfrækir leikjanámskeið í sumar eins og undafarin ár fyrir 6-9 ára börn. 

Fyrirhuguð er tvö námseið í júní og hefjast  það fyrra 4. Júní og stendur til 15 júní og það seinna  frá 18 júní til 29 júní.  Námskeiðið stendur frá 9 -12 en boðið er upp á gæslu frá 8:00. 
Dagsskráin  er fjölbreytt t.d. sveitaferð, hestaferð, hjóladagur, golf, veiðiferð, fjöruferð og ratleikur svo eitthvað sé nefnt.   Verð fyrir hvert námskeið er 8 þúsund á barn en 15 þúsund ef bókað er á bæði námskeiðin.  
Eins er hægt að semja um einstakar vikur og að sjálfsögðu er systkina afsláttur.  Umsjónamaður er Guðrún Ása Jóhannsdóttir og skráning hefst mánudaginn 4. júní í íþróttahúsi Heppuskóla.

 

Knattspyrnunámskeið - fyrir börn fædd 2006

Knattspyrnudeild Sindra ætlar að bjóða upp á knattspyrnunámskeið fyrir þau börn sem eru að byrja í skóla í haust (fædd 2006).

Námskeiðið hefst þriðjudaginn 12. júní, stendur yfir í 5 vikur og endar fimmtudaginn. 12. júlí.
Æft verður á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum kl. 13:00 – 14:00.
Verð á námskeiðið er 5000 kr. Greiðsla fer fram á fyrstu æfingu.
Skráning verður á netfangið
saevar@hornafjordur.is
Þjálfari verður Sævar Þór Gylfason íþróttakennari
.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica