Frjálsíþróttirnar komnar á fullt skrið
Nú eru frjálsíþróttirnar komnar á fullt skrið og það stefnir í hörku skemmtilegt sumar.
Við stefnum á nokkur skemmtileg mót og það fyrsta eru Sindraleikarnir sem að vanda verða haldnir sunnudaginn á Humarhátíð sem nú ber upp á 24.júní.
Meistaramót Íslands 11-14 ára verður haldið á Laugardalsvelli 30.júní til 1.júlí og þangað stefnum við að sjálfsögðu með okkar keppendur. Sumarhátíð ÚÍA á Egilsstöðum verður helgina 6.-8.júlí og Meistaramót Íslands 15-22 ára verður á Sindravelli 11.-12. ágúst. Svo er það að sjálfsögðu Unglingalandsmótið um verslunarmannahelgina sem að þessu sinni verður haldið á Selfossi og þar ætlum við okkur stóra hluti.
Upp hefur komið sú hugmynd að fara með hóp á Gautaborgarleikana í Svíþjóð á næsta ári og það gæti verið góð upphitun fyrir landsmótið okkar sem við ætlum að halda hér á Hornafirði á næsta ári.
Æfingatímar:
10 ára og yngri ;þriðju-, miðviku- og fimmtudaga kl 12:30 (byrjar 5.júní)
11-13 ára; þriðju-, miðviku- og fimmtudaga kl 14:30
Þjálfari er Jóhanna Íris Ingólfsdóttir.
14 ára og eldri; mánu-, miðviku- og fimmtudaga kl 16:30
Þjálfari er Einar Ásgeir Ásgeirsson.
Að auki verður Guðrún Ingólfsdóttir með tækniæfingar fyrir elstahóp á miðvikudögum.
Nú er tíminn til að koma sér í form fyrir unglingalandsmótið 2013 og byrja að æfa.Endilega vertu með okkur í sumar og taktu þátt í þessari skemmtilegu íþrótt!




Skrifa athugasemd