María Selma með U 17 ára landsliðinu
María Selma Haseta hefur verið undir smásjá kvennaþjálfara KSÍ frá því í fyrrasumar og nú í vetur spilaði hún sýna fyrstu leiki með U 17 landsliði Íslendinga þegar það mætti Dönum 2 sinnum í Kórnum 18. og 20. mars.
Þar voru Danir lagðir og í seinni leiknum varð jafntefli. Eftir þessa leiki var svo valin hópur sem hélt til Belgíu og var María valin í hópinn sem er talin mjög sterkur. Þar var keppt í milliriðli um eitt laust sæti í úrlitakeppninni um Evróputitilinn. Haldið var til Belgíu þann 11 apríl og þann 13. Apríl var svo keppt við England og vannst sá leikur 1-0. Næsti leikur var við Sviss og tapaðist sá leikur 0-1 í miklu roki og síðasti leikurinn var við lið heimamanna og vannst sá leikur 3 – 1 og var liðið hársbreidd frá því að komast í úrlitakeppnina. María Selma meiddist lítils háttar í þessari ferð en tók samt þátt í einum leik. Þetta er frábær árangur hjá henni að ná þetta langt því eins og áður sagði er þetta gríðarlega sterkur hópur og margar þarna sem spila með liðum í efstu deild og einhverja komnar í erlend lið líka.
Við hjá Sindra óskum Maríu Selmu til hamingju með þann mikla heiður að fá að spila fyrir Ísland hönd.




Skrifa athugasemd