Sveinbjörg með stórglæsilegan árangur í Svíþjóð um helgina.
Hornfirðingurinn Sveinbjörg Zophoníasdóttir stóð sig heldur betur vel í fimmtarþraut innanhúss á sænska meistaramótinu sem fram fór í Gautaborg um helgina.
Sveinbjörg gerði sér lítið fyrir og bætti sig í 4 greinum af 5 og vann silfurverðlaun í flokki 20-22 ára með 4063 stig og er það jafnframt næstbesti árangur íslenskrar konu frá upphafi, en aðeins tvær íslenskar konur hafa farið yfir 4000 stig.
Með þessum árangri er hún komin á heimslista í fimmtarþraut innanhúss og eru þá 2 íslenskar konur þar á lista, en það hefur ekki gerst áður. Árangur hennar og hinna íslensku keppendanna á mótinu má Sjá á síðu Frjálsíþróttasambandsins (fri.is).




Skrifa athugasemd