Sindra fréttir
Myndir frá maraþonhlaupi 4.flokks
Myndir frá maraþonhlaupi 4.flokks
Úr myndasafni (@2004)

22.02.2012 Sindra fréttir

Ýmislegt á döfinni hjá frjálsíþróttadeildinni

Sunnudaginn 26.febrúar ætlar frjálsíþróttadeild Sindra að vera með góuhlaup. Hlaupnar verða tvær vegalengdir 2km og 5km.

Hlaupið verður frá íþróttahúsinu kl 13. Tekinn verður tími á hverjum þátttakanda þannig að í lok hlaupsins fá allir þátttakendur viðurkenningarskjal með skráðum tíma. Þátttökugjald er kr 500.- pr einstakling en hver fjölskylda greiðir aldrei meira en  kr 1.500.-

Laugardaginn 31.mars, sem er laugardagur fyrir Pálmasunnudag, verður Páskahlaup Freyju og frjálsíþróttadeildar Sindra. Þar verða hlaupnar 3 vegalengdir; 2,5 km, 5 km og 10 km. Eins og nafnið gefur til kynna verða vegleg verðlaun í boði Sælgætisgerðar Freyju. Þátttökugjaldið er það sama eða kr 500.- pr einstakling en hver fjölskylda greiðir aldrei meira en  kr 1.500.- og allir fá þátttökuglaðning frá Freyju.

Í lok apríl ætlum við svo að Hlaupa í Skarðið. Það verður með sama sniði og s.l. haust, nema við ætlum að hafa betra veður. Eins og nafnið gefur til kynna þá fer viðburðurinn fram í og við Almannaskarð. Hlaup í Skarðið er ekki hugsað sem eiginleg keppni, heldur frekar eins og Kvennahlaupið en þar fara allir á sínum hraða, þ.e. sumir hlaupa en aðrir ganga. Tekinn verður tími á hverjum þátttakanda þannig að í lok „hlaupsins“ fá allir þátttakendur viðurkenningarskjal með skráðum tíma þannig að hægt verður að bera saman og vonandi bæta sig í næsta Hlaup í Skarðið.

Boðið verður upp á tvær vegalengdir. Upp Skarðið og niður aftur eða þá upp Skarðið, niður Skarðdalinn og svo sömu leið til baka.
Þátttökugjald er kr 500.- pr einstakling en hver fjölskylda greiðir aldrei meira en  kr 1.500.-

Hlaup í Skarðið er kjörinn viðburður fyrir fjölskylduna til að eiga saman skemmtilega stund í góðum félagsskap.
Í byrjun maí hefjast svo frjálsíþróttaæfingar aftur af fullum krafti því við stefnum að því að eiga marga keppendur á verðlaunapalli á Unglingalandsmótinu 2013 hér á Hornafirði.

Með bestu kveðju.

Stjórn frjálsíþróttadeildar Sindra.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica