Sindra fréttir
UMF Sindri
UMF Sindri
Meistaraflokkur kvenna
Mynd 1 af 2
1 2

08.02.2012 Sindra fréttir

Fótboltinn byrjaður að rúlla, meistaraflokkar Sindra byrjar vel.

Þótt það sé aðeins febrúar eru meistaraflokkar okkar byrjaðir að ferðast um landið til að ná sér í æfingarleiki.   
Á föstudaginn síðastliðinn hóf Sindri keppni í Síldarvinnslumótinu en það er æfingarmót fyrir meistaraflokkslið karla á austurlandi. Strákarnir byrjuðu á því að sigra 1. deildar lið  Hattar 2 – 1. Mörkin skoruðu þeir Atli Haraldsson og Atli Arnarsson. Höttur fékk tvö víti í leiknum og skoruðu úr því fyrra, en Jakob Guðlaugsson markvörður Sindra gerði sér lítið fyrir og varði seinni spyrnuna.   
Á laugardeginum fóru svo stelpurnar í meistaraflokki kvenna austur á Reyðarfjörð og kepptu við lið Fjarðarbyggðar/Leiknis.  Það voru stelpurnar okkar í Sindra sem voru mun betri og unnu öruggan sigur 4 – 0 með mörkum frá þeim Sólveigu  V. Sveinbjörnsdóttur sem skoraði tvö, Maríu Selmu Haseta og Karen Björgu Halldórsdóttur. Sigurinn var síst of stór að sögn þeirra sem sáu leikinn.  Um helgina fer svo María Selma enn eina ferðina á unglingalandliðsæfingu og spilar meðal annars æfingarleik við Breiðablik.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica