Glæsilegur árangur fimleikadeildar Sindra
Helgina 12-13. nóvember fóru 27 krakkar frá fimleikadeild Sindra á mót í almennum fimleikum sem haldið var í Hveragerði.
Keppni hófst á laugardagsmorgun og þar kepptu krakkar sem voru 11 ára. Það voru 4 keppendur frá okkur í þessum hóp og fengu Guðrúna Ása Aðalsteinsdóttir og Tinna Marín Sigurðar verðlaun á stökki og á dýnu. Á stökki varð Guðrún í fyrsta sæti og Tinna í öðru. Þess má geta að hinar tvær sem kepptu í þessum flokki lentu í fjórða og fimmta sæti; Guðný Árnadóttir í fjórða og Ylfa Beatrix í fimmta. Á dýnu verð Guðrún í öðru sæti og Tinna í þriðja sæti. Á dýnu lenti Ylfa svo í fimmta sæti og Guðný í sjötta sæti. Á trampólíni náðu þær því miður ekki á pall en Tinna lenti í fjórða sæti, Guðný í fimmta sæti, Guðrún í sjötta sæti og Ylfa í sjöunda.
Um hádegi var svo komið að öðrum hlutanum. Þar kepptu krakkar 10 ára. Þar kepptu fjórar stelpur og fjórir strákar. Á golfi (í dansi) varð Hafdís Ýr Sævarsdóttir í 3.sæt og Hafdís Rut Vilhjálmsdóttir endaði í 5.sæti. Á dýnu varð Malín Ingadóttir í 3.sæti. Á stökki náði engin af þeim inn á pall en Malín lenti í 4.sæti , Hafdís Rut í 5.sæti og Hafdís Ýr í 6.sæti. Strákarnir náðu ekki á pall en Hafsteinn Elvar Aðalsteinsson varð í 4.sæti bæði á dýnu og trampólíni og Kristján Bjarki Héðinsson varð í 5.sæti á trampólíni.
Seinasti hlutinn á laugardeginum hófst um kl 15:30. Þar kepptu krakkar 13-14 ára og kepptu þar 6 keppendur. Þar náði Sigrún Salka Hermannsdóttir 2.sæti á trampólíni. Arney Bragadóttir lenti þar í 4 sæti. Þess má geta að Arney var þar að keppa upp fyrir sig því hún er 12 ára en gat ekki keppt þegar hennar aldur var að keppa því hún var í legóhópnum sem var að keppa um morguninn í Reykjavík.
Á sunnudeginum var komið að yngstu keppendunum sem voru 9 ára. Þar áttum við sex keppendur. Á golfi (í dansi) varð Eydís Arna Sigurðardóttir í 2.sæti og María Romy Felekesdóttir í 5.sæti. Á dýnu var Eydís Arna í 1.sæti, Arnrún Mist Óskarsdóttir varð í 3.sæti, Gréta Sól Ingólfsdóttir varð í 5.sæti, Hildur Margrét Björnsdóttir í 6.sæti, María Romy í 8.sæti og María Andersen í 10.sæti. Á trampólíni voru það Maríurnar sem stóðu sig best og María Romy varð í 5.sæti og María Andersen í 7.sæti
Eftir hádegi á sunnudeginum var svo Meistaramót. Á það komust 10 hæstu einkunnir á hverju áhaldi óháð aldri. Á þetta mót komust Guðrún Ása Aðalsteinsdóttir á Stökk og Dýnu, Tinna Marín Sigurðardóttir á Stökk, Sigrún Salka Hermannsdóttir og Arney Bragadóttir á Trampólíni. Guðrún Ása varð í 10.sæti á dýnu en þess má geta að hún var þar að keppa við stelpur sem voru eldri en hún sem voru að gera erfiðari æfingar og með hærri upphafseinkunn (því erfiðara stökk, því hærri upphafseinkunn). Á Stökki gerði Guðrún sér lítið fyrir og varð í 3.sæti. Tinna Marín sem einnig er 11.ára hafnaði í 7 sæti sem er einnig mjög góður árangur. Þær Sigrún Salka og Arney stóðu sig einnig mjög vel á trampólíninu. Sigrún endaði í 3.sæti og Arney í 4.sæti.
Ekki nóg með að árangurinn hafi verið frábær heldur voru allir okkar keppendur deildinni einnig til sóma hvar sem við komum.
Fyrir hönd þjálfara og stjórnar vil ég þakka krökkunum fyrir flotta helgi og einnig þeim foreldrum sem komu með okkur og aðstoðuðu okkur við þetta allt saman.
- Kristinn Þór




Skrifa athugasemd