Hlaup í Skarðið
Sunnudaginn 16.október kl 13:30 ætlar frjálsíþróttadeild Sindra að standa fyrir viðburðinum Hlaup í Skarðið.
Eins og nafnið gefur til kynna þá fer viðburðurinn fram í og við Almannaskarð. Hlaup í Skarðið er ekki hugsað sem eiginleg keppni, heldur frekar eins og Kvennahlaupið en þar fara allir á sínum hraða, þ.e. sumir hlaupa en aðrir ganga. Tekinn verður tími á hverjum þátttakanda þannig að í lok „hlaupsins“ fá allir þátttakendur viðurkenningarskjal með skráðum tíma.
Boðið verður upp á tvær vegalengdir. Upp Skarðið og niður aftur eða þá upp Skarðið, niður Skarðdalinn og svo sömu leið til baka.
Þátttökugjald er kr 500.- pr einstakling en hver fjölskylda greiðir aldrei meira en kr 1.500.-
Hlaup í Skarðið er kjörinn viðburður fyrir fjölskylduna til að eiga saman skemmtilega stund í góðum félagsskap.
Frjálsíþróttadeild Sindra.




Skrifa athugasemd