Sveinbjörg og Einar með 4 gull og 2 silfur.
Þau Sveinbjörg Zophoníasdóttir og Einar Ásgeir Ásgeirsson voru heldur betur í eldlínunni á Akureyri á MÍ 15-22 ára í frjálsum um helgina þau kepptu í 3 greinum hvort og komust á pall í þeim öllum.
Einar varð íslandsmeistari í 800m á tímanum 2.15.43mín og 3000m á 10.53.25 mín svo vann hann silfur í 1500m hlaupi á 4.36.51 mín. Einar stundar nám á Akureyri og er að æfa hjá Gísla Sigurðssyni. Hann hefur verið að glíma við smá meiðsli í hnjám en er nú allur að koma til og mun hann þá eflaust verða fljótur að bæta árangurinn.
Sveinbjörg ákvað að taka þátt í þremur greinum að þessu sinni hún sigraði í langstökki með stökk upp á 5.93m og kúluvari með kastaði 11.86m. Sveinbjörg er með mikla yfirburði í þessum 2 greinum, hún tók einnig þátt í spjótkasti og vann silfur í þeirri grein með 36.65.
Nú er Sveinbjörg að fara á Norðurlandameistaramót unglinga sem fer fram í Kaupmannahöfn um næstu helgi, þar keppir hún í langstökki, kúluvarpi og 4x100m hlaupi.



Skrifa athugasemd