Sindra fréttir
Sveinbjorg_IMG_3091
Sveinbjorg_IMG_3091
Sveinbjörg Zophoníasdóttir er að keppa erlendis í sumar

02.08.2011 Sindra fréttir

Sveinbjörg í 16. sæti í sjöþraut 17-19 ára í Evrópu

Sveinbjörg Zophoníasdóttir gerir það ekki endasleppt á stórmótunum sem hún er að keppa á erlendis í sumar, hún gerði sér lítið fyrir og bætti sig í sjöþraut á EM U 19 sem fram fór í Tallinn um síðustu helgi.

Setti hún þar USÚ met, gamla metið frá 2010 var 5123 stig, nýja metið er 5158 stig. Hún krækti sér í 16. sætið af 25 keppendum sem skráðir voru en 3 keppendur urðu að hætta keppni en það er ekki sjálfgefið að fólk komist í gegn um heila þraut. Hitinn í Talinn var mikill þá keppnisdaga sem hún var að keppa eða 34-35 stig í forsælu en Sveinbjörg lét það ekki trufla sig frá því að bæta sig. Hún bætti sig í kúluvarpi, kastaði 12.10 m. og stórbætti árangur sinn í 800 m. hlaupi, hljóp á 2,24,07 mín. en gamla metið hennar var 2,29,93 m. Sveinbjörg á tvö eða þrjú mót eftir í sumar og verður gaman að fylgjast með henni áfram á þeim mótum.

Við óskum henni til hamingju með frábæran árangur.

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica