Frábær árangur á Smáþjóðarleikunum í Liechtenstein
Frjálsíþróttakonan Sveinbjörg Zophoníasdóttir stóð aldeilis í eldlínunni á Smáþjóðarleikunum sem fóru fram í Liechtenstein 31.- 4. júní.
Hún hóf keppni í hástökki þar sem hún stökk 1.68m og hlaut þar með bronsið í þeirri grein, hún var aðeins 2 cm frá sínu besta. Síðan keppti hún í langstökki stökk 6.07m sem er aðeins 3 cm frá hennar besta og næst lengsta stökk sem hún hefur stokkið um ævina, með þennan árangur lenti hún í 4. sæti.
Svo síðasta dag keppninnar keppti hún í kúluvarpi varpaði kúlunni 12.35m og bætit hún sig um 34 cm, sem er mjög góður árangur, með þennan árangur komst hún aftur á pall hlaut aftur brons.
Það má segja að Sveinbjörg hafi aldeilis stimplað sig inn í sumarið með þessum frábæra árangri og verður gaman að fylgjast með henni í sumar.



Skrifa athugasemd