Sindra fréttir
Ævintýra og leikjanámskeið Sindra
Ævintýra og leikjanámskeið Sindra
Ævintýra og leikjanámskeið Sindra (úr myndasafni)

02.06.2011 Sindra fréttir

Ævintýra- og leikjanámskeið Sindra að hefjast

Ungmennafélagið Sindri verður með ævintýra og leikjanámskeið fyrir 6 – 9 ára börn

Ævintýra og leikjanámskeið Sindra fara af stað mánudaginn 6. júní. Alls verða námskeiðin þrjú og standa öll yfir í 2 vikur í senn.  Á námskeiðunum verður farið um víðan völl t.d. verður farið á hestbak, í fjöruferðir, sund, golf og veiðiferðir svo eitthvað sé nefnt. Þá verður alltaf grillað í lok hvers námskeiðs.

6. júní -  16. júní, Ævintýra og leikjanámskeið
20. júní – 1. júlí, Ævintýra og leikjanámskeið
8. ágúst – 19. ágúst, Ævintýra og leikjanámskeið

Verð á námskeiðin er 7000 kr., 10.500 kr. fyrir systkini og frítt fyrir þriðja.  Sé greitt fyrir þrjú námskeið í einu er gjaldið 18.000 kr en 22.000 fyrir systkini. Dagskráin er frá 9.00 – 12.00, en boðið er upp á gæslu milli 8.00 – 9.00

Þá er fyrirhugað útivista námskeið fyrir  9–12 ára krakka sem stendur yfir í 6 daga og verður það haldið dagan 5. júlí  til 13. júlí ef næg þátttaka fæst. 

Kristinn Þór Guðlaugsson er yfir umsjónarmaður leikjanámskeiðunum og öll skráning fer fram í íþróttahúsinu.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica