Sindra fréttir
Sveinbjörg í A landslið Íslands
Sveinbjörg Zophoníasdóttir frjálsíþróttakona var í gær valin í íslenska A landsliðið sem er að fara á Smáþjóðaleikana í Lichtenstein 29.maí.
Hún var valin til að keppa í langstökki, hástökki og kúluvarpi, þetta eru allt greina sem hún keppir í í sjöþrautinni og þess vegna er hún vel undirbúin í þeim. Sumarið verður viðburðaríkt hjá henni, hún fer á 4 mót erlendis auk Smáþjóðaleikanna. Það verður gaman að fylgjast með henni í sumar og að sögn þjálfara hennar er hún í feikna góðu formi og hefur verið mjög dugleg að æfa í vetur eins og endranær.Við óskum henni velgengni á vellinum í sumar.




Skrifa athugasemd