Gaman Saman verður haldið 14. maí
Það hefur lengi verið stefna og starf ungmannafélagsins Sindra að fá unga sem aldna til þess að stunda íþróttir, útiveru og hreyfingu enda fátt betra og skemmtilegur en leikur með sínum nánustu.
Þann 14. maí n.k. ætlar ungmanafélagið að standa fyrir einum allsherjar hreyfidegi. Það er stefna okkar þá að fá alla út og helst að keppa í einhverri grein. Og ef menn treysta sér ekki til að keppa, þá allavega að koma og hvetja sitt fólk. Mótið verður byggt upp líkt og mótið Íformi nema nú er það fyrir allan aldur. Miðað verður við að keppendur geti keppt í fleiri en einni grein og hefur verið leitast við að raða tímum og greinum upp með það í huga. Lögreglan mun stjórna hjóla- og þríhjólaþrautum og félag eldriborgara ætlar að sjá um boccia í íþróttahúsinu um morguninn. Aðrar greinar sem keppt verður í eru brennibolti fyrir bæði kyn, strandblak, hnit, karfa 3 á 3, frjálsar með nýju ívafi, og svo sund þar sem fjölskyldur keppa boðsund og verður veitt forgjöf eftir því hvað keppendur eru ungir eða gamlir. Keppnisgjaldi verður stillt í hóf eða 1000 kr. á keppenda en þó aldrei hærra en 3000kr á fjölskyldu. Í lok dags er hugmyndin að búið verði að semja við eitthvað veitingarhúsið svo pabbinn og mamman þurfi ekki að elda og geti bara boðið sínum ungum á pizza hlaðborð eða annað gott.
Þegar nær dregur móti verður gefinn út tímaseðill, keppnisreglur og annað sem nauðsynlegt er að vita áður en stóri dagurinn rennur upp.
Allir pabbar verða auðvita búnir að yfirfara hjólin, stilla sætin, smyrja keðjur og laga bremsur áður en að mótinu kemur.
Stjórn ungmannafélagsins Sindra hvetur alla Skaftfellinga til að taka þátt í mótinu.
- Valdi



Skrifa athugasemd