Sindra fréttir
Sveinbjörg  Zophoníasdóttir USÚ
Sveinbjörg Zophoníasdóttir USÚ
Þrír efstu í langstökki

09.02.2011 Sindra fréttir

Sveinbjörg íslandsmeistari í langstökki kvenna.

Sveinbjörg  Zophoníasdóttir USÚ varð íslandsmeistari í langstökki um síðustu helgi og bætti hún gamla metið sitt um 10 cm. og stökk 5.98m.

Sveinbjörg bætti sig einnig í 60 m. hlaupi,  hljóp á 8.13 sek. en nokkurra daga gamalt USÚ met var 8.19 sek.  Mikil keppni var í langstökkinu þar sem þær allra sterkustu í greininni   þátt. Einar Ásgeir Ásgeirsson tók einnig þátt í mótinu og varð í 4. sæti í sínum greinum,  800 m. og 1500 m., hann bætti sig í 1500 m. hlaupi, hljóp á 4.22.23 mín., og var aðeins hársbreidd frá 3. sætinu.  Þau Sveinbjörg og Einar eru búin að eiga flott innanhússtímabil en nú er því lokið og tekur þá við áframhaldandi uppbygging fyrir sumarið. Þess má geta að Bjarni Malmquist frá Jaðri landaði 3 silfrum, í langstökki, 400 m. og boðhlaupi og  Vigfús Dan varð 4. í kúluvarpi, kastaði 14.11 m. Svo það má nú segja að Hornfirðingar hafi staðið í eldlínunni á Meistaramóti Íslands um helgina þar sem 171 keppandi keppti.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica