Sindra fréttir
Íslandsmeistaramót í kraftlyftingum
Íslandsmeistaramót í kraftlyftingum
Ingi Stefán

08.02.2011 Sindra fréttir

Sigraði á íslandsmeistaramót í bekkpressu

Þann 29. janúar s.l.var hið árlega íslandsmeistaramót í bekkpressu haldið af Kraftlyftingafélagi Akranes. Vel var að mótinu staðið og þátttaka góð, 8 konur mættu til keppni og 24 karlmenn á öllum aldri. Kraftlyftingafélag Sindra á Hornafirði var með sinn fulltrúa á mótinu Inga Stefán Guðmundsson sem keppti í -105 kg flokki. Hann gerði sér lítið fyrir og sigraði flokkinn með þó nokkrum yfirburðum og setti í leiðinni nýtt íslandsmet þegar hann lyfti 215 kg. Þetta er í áttunda skipti sem Ingi Stefán tekur þátt í mótinu og þriðji íslandsmeistaratitillinn hans.

Frekari upplýsingar er að finna á kraft.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica