Sindra fréttir
UMF Sindri
UMF Sindri
Barist á Sindravöllum (úr myndasafni)

20.01.2011 Sindra fréttir

Forvarnardagur hjá Sindra - Góðir gestir í heimsókn til Sindra

Fimmtudaginn 20. janúar fáum við í Sindra góða gesti í heimsókn þegar A landsliðsþjálfarar í knattspyrnu mæta til okkar,  þeir Ólafur Jóhannesson  og Sigurður Ragnar Eyjólfsson.  

Munu þeir stjórna æfingum á nýja gervigrasinu hjá mfl. karla og kvenna jafnframt sem þeir koma til með að hitta krakkana í Heppuskóla og  verða svo með fyrirlestur í Nýheimum. 

Annars er dagskráin svona hjá þeim félögum og er um að gera að koma og fylgjast með þeim að stjórna æfingum

Fimmtudagur 18:00 – 19:30 æfing hjá Meistaraflokkur kvenna 

Fimmtudagur 19:30 – 21:00 æfing hjá Meistaraflokki karla

Á föstudeginum fyrir hádegi verður svo spjall við krakka í Heppuskóla.

Föstudaghádegi í Nýheimum verður svo haldin fyrirlestur af Sigurði Ragnari sem ber nafnið

“Hvað þarf til að ná árangri” og er hann öllum opin og hefst hann kl 12:30

Heimsókninni líkur svo með því að þeir félagar stjóra æfingum hjá 3 flokkum karla og kvenna kl: 14:30 á gervigrasinu og stendur sú æfing yfir í rúman klukkutíma.

 Það er alveg ljóst að svona heimsóknir efla trú okkar á það að við séum á réttri leið en stutt er síðan      FH-ingar komu hér með bestu leikmennina sína ásamt þjálfara og formanni félagsins.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica