Sindra fréttir
Jólasport
Jólasport

10.12.2010 Sindra fréttir

Jólamót Kraftlyftingadeildar Sindra

Haldið verður kraftlyftingamót í Sporthöllinni sunnudaginn 26.desember ( annar í jólum ) ef einhver þátttaka verður. Keppt verður í þríþraut án útbúnaðar (einungis vafningar og belti leyfilegt) :

Hnébeygja-bekkpressa-réttstöðulyfta

Einnig verður keppt í  „biceps curl“ keppni (mesta þyngd).

Keppt verður í tveimur þyngdarflokkum -85 og +85 kg.

Veitt verða verðlaun fyrir fyrsta sæti í hvorum flokki og fyrir curl max.

Þetta verður mót á léttu nótunum og hvetjum við sem flesta til að mæta, jafnt nýliða sem lengra komna, frítt er á mótið.

Mótið hefst kl.14:00 í Sporthöllinni.

Aðalfundur Kraftlyftingadeild Sindra verður kl.13:00 í Sporthöllinni og hvetjum við sem flesta til að koma og gerast félagar. Félagsgjald er 1000 kr. Kynnt verða mót ársins 2011 hjá Kraft og kosin ný stjórn.

Skráning er hafin í Sporthöllinni..

Ingi Stefán og Sævar Rafn

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica