Mikið um að vera hjá blakdeild Sindra
Hjá blakdeild Sindra eru á milli 70 – 80 iðkendur í vetur. Í haust fór af stað nýr hópur sem hittist 1x í viku í Mánagarði og æfir sig í blaki, þetta eru 16 konur á öllum aldri og gengur vel hjá þeim og er oft mikið stuð á æfingum.
Krakkarnir okkar eru búnir að taka þátt í Íslandsmóti á Akureyri þar sem 4. flokkur náði 2. sæti í sínum riðli, 3. flokkur karla og kvenna fór í Kópavog og stóðu sig mjög vel þar, stelpurnar náðu 2 sæti í sínum riðli. Það eru mjög margir efnilegir krakkar að koma upp úr 3. flokki, bæði karla og kvenna, og megum við sem eldri erum fara að vara okkur .
Meistaraflokkarnir eru farnir af stað á Íslandsmóti og eru búnir að spila sitt hvorn leikinn. Stelpurnar unnu Val Reyðarfirði 3-1 og strákarnir töpuðu fyrir blakveldinu Þrótti Nes. 3 – 0.
Þess má geta að í þeim leik spiluðu feðgar saman í fyrsta skipti hjá Sindra í blaki, það eru þeir Gísli Vilhjálmsson og Felix Gíslason og óskum við þeim til hamingju með það.
Blakdeild Sindra




Skrifa athugasemd