Mikið um að vera hjá Sunddeild Sindra
Mikil aukning er í hópi þeirra sem að æfa sund og eru nú í haust um 40 sem æfa reglulega en til samanburðar þá voru iðkendur í vor um 30.
Í haust eru búnar að vera æfingar tvisvar í viku en að auki fá elstu krakkarnir eina kvöldæfingu í mánuði, sem hefur verið skemmtileg tilbreyting fyrir þau. Yngri krakkarnir hittust yfir bíomynd í október í Sindrabæ og vildu ólm hafa svoleiðis strax aftur. Við fórum í dósasöfnun og var mjög vel tekið á móti okkur, gekk okkur það vel að við gátum keypt sundhettur á liðið. Hettur verða einnig til sölu í Sundlauginni.
Þann 13. nóvember s.l. fór fjölmennur hópur, um 33 sundkappar frá Sunddeild Sindra, á Djúpavog og keppti þar við félög af austurlandi á bikarmóti UÍA. Farið var á einkabílum og fylgdu foreldrar og stundum systkyni með. Við vorum sem sagt með gott lið bæði ofaní laug og uppá bakkanum. Keppt var um stigabikara og að auki fengu allir keppendur yngri en 10 ára þátttökupening. Stóðu krakkarnir okkar sig frábærlega vel og komu heim með bikar fyrir 2.sæti í stigakeppni liða.
Við í Sunddeildinni erum að vonum hæst ánægð og stolt af okkar duglegu krökkum.
Stjórn Sunddeildar




Skrifa athugasemd