Sindra fréttir
Sveinbjörg gerir það ekki endasleppt
Sveinbjörg Zophoníasdóttir keppti á sænska meistaramótinu í fjölþrautum um helgina í sjöþraut. Hún gerði sér lítið fyrir og hreppti brons.
Sveinbjörg náði aftur að skora yfir 5000 stig eða 5044 stig sem er aldeilis frábær árangur hjá henni. Sveinbjörg er búin að eiga mjög gott keppnistímabil í sumar og ætlar að halda ótrauð áfram í vetur. Þess má geta að hún er búin að ná lámarki á Evrópumeistaramótið U19 sem fer fram í Tallen á næsra ári, bæði í sjöþraut og langstökki, því verður mikið að gera hjá henni í vetur að styrkja sig og æfa.




Skrifa athugasemd