Sindra fréttir
íformi æfingar
íformi æfingar
íformi æfingar

16.08.2010 Sindra fréttir

 Æfingar Íformi

 

Þá er komið að því, æfingar eru að hefjast fyrir íformi mótið.  Vonandi erum við þó öll í fínu formi eftir sumarið og þurfum bara aðeins að laga tæknina til að verða keppnishæf. Ef staða er ekki alveg svo góð eftir grillkjötið í sumar þá er ekkert annað en að hefjast handa og koma sér í form fyrir mótið.  Æfingar eru þegar hafnar í sumum greinum en aðrar byrja þegar nær dregur mánaðarmótum. Þó ekki séu hafnar skipulagðar æfingar í öllum greinum er það ekki afsökum fyrir því að koma sér ekki í form.  Gott er að byrja á því að bjóða makanum út í göngutúr og auka svo ferðina eftir því sem nær dregur mótinu.

Mótið verður með líku sniði og undanfarin ár að því undanskildu að við ætlum að bæta við einni grein, það er brennibolti fyrir konur. Þetta er íþrótt sem allar konur ættu að geta spilað svo framalega að þær eru með sæmilega sjón. Skráning á mótið hefst í næstu viku og um að gera að skrá sig sem fyrst annað hvort á netinum( iformi.is), hjá greinastjórunum sem sjá má hverjir eru á heimasíðunni eða hjá Valda framkvæmdastjóra Sindra í síma 8686865.

Á heimasíðu mótsins iformi.is verður hægt að ná í allar nýjustu upplýsingar um mótið en einnig verður þeim komið í staðarmiðlana eins og hægt er. 

Æfingatímar

Fótboltaæfingar verða hjá körlum á þriðjudögu og fimmtudögum kl 19:30 en konurnar ætla að vera á mánudögum og miðvikudögum kl 20:00

Frjálsíþróttaæfingar verða  kl 17:00 á þriðjudögum

Blakæfingar hefjast um mánaðarmótin

Brenniboltaæfingar verða kl 17:00 á fimmtudögum

Badmintonæfingar verða á þriðjudögum og fimmtudögum kl 17:00 í íþróttahúsi Hafnar

Golfvöllurinn er alltaf opinn, það er bara að koma sér þangað

Bridgefélagar geta æft sig saman eða í tölvu

Greinastjórar

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica