Sindra fréttir
Einar Ásgeir Ásgeirsson á verðlaunapallinum
Einar Ásgeir Ásgeirsson á verðlaunapallinum
Mynd 2 af 2
1 2

22.07.2010 Sindra fréttir

Einar Ásgeir tvöfaldur íslandsmeistari

 

Dagana 17. og 18. júlí var Meistaramót Íslands 15-22 ára í frjálsum íþróttum haldið á svæði FH í Hafnarfirði. Þangað fóru 3 vaskir sveinar á vegum USÚ. Þetta voru þeir Jón Snorri Þorsteinsson sem keppti í aldursflokknum 19-22 ára, Björn Ármann Jónsson sem keppti í flokknum 17-18 ára og Einar Ásgeir Ásgeirsson sem keppti í flokknum 15-16 ára. Það er skemmst frá því að segja að þeir stóðu sig allir með príði og Einar Ásgeir gerði sér lítið fyrir og varð Íslandsmeistari í 2 greinum! Fyrri daginn þá hljóp hann 1500m á 4:21,58 og varð Íslandsmeistari í þeirri grein. Hann bætti jafnframt USÚ metið sem Fannar Blær Austar Egilsson átti, en það var 4:21,78. Klukkutíma síðar hljóp Einar 400m hlaup á 55,71 og lenti þar í 3ja sæti. Daginn eftir þá byrjaði hann á því að hlaupa 800m á 2:05,31 og varð Íslandsmeistari í þeirri grein auk þess sem hann setti nýtt USÚ met en gamla metið, sem var 2:06,44, átti Fannar Blær. En hann Einar var auðvitað ekki hættur og rúmum klukkutíma eftir að hann hljóp 800m þá skrapp hann í 3000m hlaup og hljóp það á 10:08,51 og lenti í 2. sæti sem er glæsilegur árangur.

Við óskum Einari innilega til hamingju með glæstan árangur og vonumst til þess að fá að sjá miklu meira til hans í framtíðinni.

Kveðja frá frjálsíþróttadeild Sindra.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica