Sindra fréttir
Sindraleikur
Sindraleikur
Það var mikil stemning á vellinum (@Eirin)

15.06.2010 Sindra fréttir

Glæsilegir sigrar hjá meistaraflokkum Sindra á laugardag

Það var sannkölluð fótboltaveisla á laugardag þegar tveir meistaraflokksleikir fóru fram.  Meistaraflokkur karla mætti KFR og meistaraflokkur kvenna mættu ÍR.

Hálftíma fyrir leik buðu stuðningsmenn Sindra upp á kaffi og þar fór Sindri Ragnars þjálfari yfir leikinn sem var framundan, hvernig leikmenn væru stemmdir og hvernig leikurinn væri lagður upp.  Klukkan 14:00 var svo blásið í flautu í frábæru fótbolta veðri á Sindravelli. Það kom áhorfendum hins vegar á óvart að gestirnir höfðu skorað tvö mörk í hálfleik en Sindri ekkert. Fyrra markið var með glæsilegri mörkum sem sést hafa á Sindravöllum og hitt beint úr aukaspyrnu.  Sindramenn óðu í færum en í mark vildi boltinn ekki.  Í seinni hálfleik var mikil pressa á Sindramenn og það var ekki fyrr en á 61 mín. að ísinn brotnaði og má kannski segja að hann hafi mölbrotnað, sjálfsmark gestanna og síðan komu svo tvö mörk frá Kristin Þór og eitt frá Atla Arnars og annað sjálfsmark gestanna til viðbótar auk þess sem þeir klóruðu aðeins í bakkann og tókst að bæta við einu til viðbótar  en lokatölur 5-3 fyrir Sindra.  

Seinni leikurinn byrjað eins og hinn fyrri með fundi og veislukaffi í boði meistaraflokksráði kvenna og þar fór Sindri Ragnarsson yfir leikinn sem framundan var og talað um sérstaklega góða stemningu í hópnum og hann reiknaði með góðum leik hjá Sindraskvísunum en tók það jafnframt að hann reiknaði með sterku ÍR liði.  Það reyndist rétt hjá þjálfaranum,  það var mikil og góð stemming í Sindraliðinu en hitt var alfarið rangt, ÍR liðið átti aldrei séns í vel spilandi lið Sindra.  Þessi leikur var hin besta skemmtun en það var ekki fyrr en í seinn hálfleik að fyrsta markið kom og var Sólveig Sveinbjörns þar að verki,  næsta mark var svo sjálfsmark gestanna.  Kristey Lilja gerði sér svo lítið fyrir og skorðaði nánast frá miðju en það var svo Heba Björg sem skoraði svo síðasta markið í leiknum 4-0 og glæsilegur sigur í höfn. 
Það var verulega gaman að horfa á liðið sem er mjög vel spilandi  og fullt af efnilegum  stelpum  þarna á ferð og er greinilegt að Sindri Ragnarsson er á réttri leið með hópinn. 
Fín skemmtun báðir leikirnir

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica