Sindra fréttir
Uppskeruhátíð yngriflokka Sindra 2006
Uppskeruhátíð yngriflokka Sindra 2006
Uppskeruhátíð yngriflokka Sindra 2006

10.06.2010 Sindra fréttir

Góður fyrri hálfleikur gegn slæmum seinni hálfleik

Strákarnir í 3.fl. fóru austur á Reyðarfjörð í dag þar sem þeir kepptu við mjög sterkt lið KFF. Spilað var inn í höllinni á gervigrasi. Strákarnir okkar byrjuðu gríðarlega vel með glæsilegu marki sem Eiríkur skoraði, kappsemin var mikil á fyrstu mínútunum og vildu menn ekki gefa tommu eftir. KFF sótti stíft á okkar mark en Sindrastrákar gáfu ekkert eftir og vörðust gríðarlega vel. Guðmundur, Helgi og Einar áttu stórleik í fyrrihálfleik enda mikið að gera hjá þeim í vörninni. Eftir mikla atlögu að marki Sindramanna skoraði KFF 2 mörk áður en flautað var til hálfleiks. Í seinnihálfleik voru strákarnir okkar ekki eins sprækir og fengu á sig mark mjög snemma og eftir það var róðurinn mjög erfiður. Leikurinn endaði með 11-1 sigri KFF.

Lið Sindramanna

Einar
Gummi
Helgi
Aggi
Sævar
Felix
Guðjón Ingibergur
Guðjón Bjarni
Róbert
Eiríkur (Skoraði 1 mark)
Alli
Jens
Trausti

Skrifað af Sindra Ragnarssyni Ábyrgðamaður Haukur Ingi Einarsson

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica