Stórglæsilegur Sigur 2.fl. kk
2.flokkur karla er á góðri siglingu
2.flokkur karla er á gríðarlegri siglingu þessa stundina. Í gær héldu þeir á Norðfjörð til að spila gegn KFF. Það var vitað mál að þeir voru að fara mæta mjög sterku KFF liði, þeir töpuðu fyrir þeim 2-7 í fyrr í vetur. En strákarnir eru búnir að æfa gríðarlega vel í allan vetur og voru tilbúnir til að borga til baka þær kveðjur sem þeir fengu frá KFF fyrr í vetur. Sævar Knútur opnaði markareikninginn á 20 mínútu eftir stórglæsilegt mark utan af velli. Þessa stundina er litli Knúturinn sjóðheitur og búinn að skora í báðum leikjunum sem 2.fl. hefur spilað.
Í hálfleik var staðan 0-1- fyrir Sindra og segja sjónarvottar að Sindrastrákar hefðu átt að fá víti þegar Hallmar sólaði markmanninn sem brá á það ráð að kippa í fótinn á honum of fella hann þannig inn í teyg. En dómarinn var ekki á sama máli og hélt því leikurinn áfram. Stefán Lárus átti margar frábærar vörslur í leiknum var ein þeirra svo ótrúleg að fólk í brekkunni rúllaði niður hana af undrun á meðan Cober labbaði upp í hana. Eftir um 60 mínútur tókst KFF að jafna leikinn og því staðan orðin 1-1, en baráttuglaði Sindrastrákar héldu ótrauðir áfram og Alex hinn Mikli tókst að skora sigurmarkið á 88 mínútu eftir markfalt þríhyrningarspil við samherja sína. Nú eru strákarnir komnir með 6 stig eftir tvo leiki og stefna ofar í töfluna.
Lið Sindramanna
Stefán, Óli Albert, Ingvi, Siffi, Sverrir, Þorsteinn, Sindri, Alex (Skoraði 1mark, Sigurmarkið), Sævar (Skoraði 1 mark, fyrsta mark leiksins), Egill, Hallmar, Frikki, Reynir, Sæþór.
Skrifað af Sindra Ragnarssyni
Ábyrgðamaður Haukur Ingi Einarsson




Skrifa athugasemd