Sindra fréttir
Meistaraflokkur kvk. Sindra 2010
Meistaraflokkur kvk. Sindra 2010
frá vinstri – efsta röð : Kristján, Gunnar Ingi, Þóra Birna, Kristey, Valdís, Iðunn, María S, Ásta, Kolbrún, Sandra, Sindri og Haukur Ingi. frá vinstri – mið röð : Anna, Þórdís, Mist, Heba, Lejla, Bríet, Sunna og Karen. frá vinstri – neðsta röð : Þórhildur, Nejra, Siggerður, Hulda, Anna, Árdís, María B, Dóra og Karitas.

07.06.2010 Sindra fréttir

Fjarðabyggð 4 -1 Sindri

 

Sindrastelpur fóru austur á Norðfjörð að keppa í Visa-bikar kvenna gegn Fjarðarbyggð / Leikni.  Leikurinn byrjaði ágætlega og liðin sóttu jafnt fyrstu mínúturnar. Sindrastelpur uppskáru samt sem áður mark sem María Birkisdóttir skoraði eftir glæsilega sendingu frá Lejlu Cardaklija. Þær áttu nokkur hættuleg færi sem þær náðu ekki að nýta nógu vel en Fjarðarbyggðarstúlkur skoruðu í lok fyrri hálfleiks og var því staðan í hálfleik 1 – 1.

Sindrastelpur áttu mjög gott spil sín á milli en voru óheppnar að fá fljótlega eftir að seinni hálfleikur hófst annað mark á sig.  Eftir annað mark þeirra kom grimmd í Sindrastelpur og áttu þær skot í slá, auk nokkura annarra skota sem að markmaður Fjarðarbyggðar varði vel. Fjarðarbyggð fékk víti og skoruðu sitt þriðja mark úr því.  Fjórða mark Fjarðarbyggðar kom í lok leiks en höfðu Sindrastelpur þá gefist upp. Gerðar voru þrjár skiptingar á Sindraliðinu meðan að á leiknum stóð en María Birkisdóttir, Sólveig Valgerður Sveinbjörnsdóttir og María Selma Haseta fóru útaf fyrir Árdísi Drífu Birgisdóttir, Önnu Lind Þórhallsdóttur og Þórdísi Imsland.  Lokatölur leiksins voru 1 – 4 og voru Sindrastelpur mjög svekktar eftir annað tap sitt gegn Fjarðarbyggð á þessu sumri.

Næsti leikur Sindrastelpna er þriðjudaginn 8 júní.

Byrjunarlið :
Hulda Björg Sigurðardóttir (m)
María Selma Haseta
Eydís Arna Líndal
Kristey Lilja Valgeirsdóttir
Kolbrún Birna Ólafsdóttir
Valdís Ósk Sigurðardóttir (f)
Lejla Cardaklija
Karen Björg Halldórsdóttir
María Birkisdóttir
Heba Björg Þórhallsdóttir
Sólveig Valgerður Sveinbjörnsdóttir

Varamenn :
Þórdís Imsland
Mist Grétarsdóttir
Anna Mekkín Reynisdóttir
Anna Lind Þórhallsdóttir
Árdís Drífa Birgisdóttir

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica