Íslandsmeistari í sjöþraut kvenna
Sumarið lofar góðu hjá Sveinbjörgu Zophoníasdóttur. Hún gerði sér lítið fyrir og vann Íslandsmeistaratitilinn í sjöþraut kvenna á Meistaramóti Íslands í fjölþrautum sem haldið var á Kópavogsvelli um helgina.
Þetta er hennar best árangur í 7þraut til þessa og hún bætti einnig Úlfljótsmetið í spjótkasti með kasti upp á 38.09 m og bætti að sjálfsögðu USÚ metið sitt í sjöþraut og hlaut samanlagt 4716 stig. Með þessum frábæra árangri tryggði hún sér þátttöku á Norðurlandameistaramótinu sem verður í Danmörku 12.-13. júní. Það er ljóst að Sveinbjörg er í feiknalega góðu formi og er til alls líkleg í sumar og verður gaman að fylgjast með hennar afrekum.



Skrifa athugasemd