Fjarðabyggð 3- 2 Sindri
Sindrastelpur héldu í annan leik sumarsins austur á Norðfjörð og spiluðu þar við sameinað lið Fjarðarbyggðar og Leiknis. Okkar stelpur byrjuðu leikinn betur og áttu tvö skot í slánna á fyrstu 5 mínútunum. Á fertugustu og fjórðu mínútu fengum við aukaspyrnu vegna mistaka milli varnarmanns og markmanns Fjarðarbyggðar. Heba Björg tók spyrnuna og skoraði fyrsta mark leiksins. Fleiri voru mörkin ekki í fyrri hálfleik og staðan var þá 1-0 fyrir Sindra.
Í seinni hálfleik voru sindrastelpur mun slakari en í þeim fyrri og þar af leiðandi slakara liðið á vellinum. Við fengum ekki mörg færi og nýttum ekki færin sem að við fengum. Fjarðarbyggð skoraði sitt fyrsta mark á fimmtugustu og fjórðu mínútu og einni mínútu eftir það fékk Hulda Björg að líta gula spjaldið. Þá voru gerðar breytingar á liði Sindra, en Kolbrún Birna kom inná fyrir Önnu Lind. Á sextugustu og fjórðu mínútu fengu Fjarðarbyggð víti og skoraði markmaður þeirra örugglega úr því. Þremur mínútum síðar fór Árdís Drífa af velli og inná kom María Selma. Okkur til mikillar óhamingju náðu Fjarðarbyggðarstelpur að skora annað mark og var þá staðan orðin 3-1. Huldu Björg var þá skipt útaf fyrir Önnu Mekkín sem að stóð sig með príði. Karitas Björt kom sem varamaður inná eftir þetta mark og fór Karen Björg af velli. Kolbrún Birna varð fyrir því óhappi að lenda í samstuði við mótherja og meiddist á sköflungi og þurfti hún að fara á sjúkrahús að hlúa að sárum sínum. Valdís Ósk skoraði annað mark Sindrastelpna á nítugustu og þriðju mínútu eftir magnaðan einleik. Lokatölur voru 2-3 tap og fórum við ósáttar af velli.
Næsti leikur sindrastelpna verður á Fáskrúðsfirði, föstudaginn 4. júní við Fjarðarbyggð en í þetta sinn er hann í vísa-bikarnum.
Fyrir hönd mfl kvk,
Heba Björg og Þórdís Imsland.
Byrjunarlið :
Hulda Björg Sigurðardóttir (m)
Mist Grétarsdóttir
Kristey Lilja Valgeirsdóttir
Lejla Cardaklija
Sandra Rán Ásgrímsdóttir
Valdís Ósk Sigurðardóttir
Heba Björg Þórhallsdóttir
Karen Björg Halldórsdóttir
Anna Lind Þórhallsdóttir
Sólveig Valgerður Sveinbjörnsdóttir
Árdís Drífa Birgisdóttir
Varamenn :
Kolbrún Birna Ólafsdóttir
María Selma Haseta
Anna Mekkín Reynirsdóttir
Karitas Björt Óskarsdóttir
Þórdís Imsland
Á myndinni eru:
frá vinstri – efsta röð : Kristján, Gunnar Ingi, Þóra Birna, Kristey, Valdís, Iðunn, María S, Ásta, Kolbrún, Sandra, Sindri og Haukur Ingi.
frá vinstri – mið röð : Anna, Þórdís, Mist, Heba, Lejla, Bríet, Sunna og Karen.
frá vinstri – neðsta röð : Þórhildur, Nejra, Siggerður, Hulda, Anna, Árdís, María B, Dóra og Karitas.



Skrifa athugasemd