Sindra fréttir
Kristján Guðnason
Kristján Guðnason
Nýkjörinn formaður knattspyrnudeildar Sindra

27.05.2010 Sindra fréttir

Kristján Guðnason kosinn formaður knattspyrnudeildar

Ný stjórn tók við á síðasta aðalfundi Knattspyrnudeildar Sindra. Mikil hugur er í stjórninni og má búast við miklu af henni í framtíðinni.

Aðrir í stjórn eru, Guðrún Óskarsdóttir, Haukur Ingi Einarsson, Gunnar Ingi Valgeirsson og Guðmundur Þorláksson. Með fyrstu verkum stjórnar var að stofna meistara- og 2. flokksráð en í því sitja Björn Þórarinn Birgisson, Björn Sigfinnsson, Gísli Már Vilhjálmsson, Sævar Þór Gylfason og Ásgeir Gunnarsson undir stjórn Alberts Eymundssonar. Albert hefur góða reynslu og þekkingu þegar kemur að fótboltamálum er stjórnin sannfærð um að það verður lyftistöng fyrir knattspyrnuna að fá hann aftur til starfa.

Mikil ánægja ríkir með nýjan þjálfara meistaraflokks karla, Óla Stefáns Flóventssona. Góður bragur er á liðinu utan sem innan vallar og árangur eftir því sem komið er. Sævar Þór tekur svo að sér að gera handbók fyrir yngri flokka til að gera yngri flokka starfið markvissara. Meiri kraftur er settur í stuðningsmanaklúbbinn sem er bæði fyrir karla- og kvennaliðið. Gert er ráð fyrir að klúbbfélagar hittist fyrir heimaleiki og í hálfleik og fái sér kaffisopa eða jafnvel súpu.  Þjálfara munu koma í heimsókn og útskýra val sitt á liðum og taktík. 2. flokkur keppir nú á Íslandsmót eftir langa bið og afar mikilvægt að þessi áhugasami hópur fái stuðning úr öllum áttum.

Stjórnin hvetur íbúa héraðsins og stuðningsfólk Sindra að fjölmenna á leiki og hvetja okkar menn og konur.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica