Sindri með brons
Íslandsmótið í 2. og 3. deild í blaki lauk í Kópavoginum um síðustu helgi. Sindra konurnar unnu austurlandsriðilinn í 2. deild vetur, eins og áður hefur verið greint frá og fóru því í úrslitakeppnina.
Sindri spilaði undanúrslitaleikinn við A lið Stjörnuna úr Garðabæ. Stjarnan vann þann leik 3:1. Sindri vann fyrstu hrinuna 25 – 17 en hinar hrinurnar töpuðust 17 – 25, 15 – 25 og 22 -25. Í leiknum um 3. sæti keppti Sindri við Súlur A frá Siglufirði og vann þann leik 3 – 1. Hrinurnar fóru 25 – 22, 25 – 20, 21 – 25 og 25 – 20.
Íslandsmeistarar í 2. deild kvenna 2010 urðu Stjarna A, í öðru sæti varð Þróttur Reykjavík og Sindri í því þriðja. Þetta er frábær árangur hjá Sindrakonum og fyrsta verðlaunasæti mfl. Sindra á Íslandsmóti.
Fyrirhugað var að fara í Íslandsmót yngri flokkanna sem fram fer í Kópavoginum núna um helgina og ætlaði Sindri með sex lið þangað. Vegna eldgossins í Eyjafjallajökli verður að blása þá ferð af en fyrirhugað er að fara með hópinn á Fáskrúðsfjörð á næstunni í staðinn og spila þar við Leikni.
Fjögur lið, tvö karla- og tvö kvennalið, skipuð leikmönnum 30 ára og eldri fara síðan til þátttöku á hinu árlega og afar skemmtilega öldungamóti sem haldið verður í Mosfellsbæ í maí.




Skrifa athugasemd